Jæja þá er maður orðin Hafnfirðingur, eða svoleiðis..
Er semsagt flutt. Komin upp á fjórðu hæð í blokk með engri lyftu.. Og ég er að segja ykkur það, það er ekkert grín að flytja upp á fjórðu hæð. Er rétt svo búin að jafna mig á þessu. Og ég held að fólkið mitt sem kom og hjálpaði mér sé ekki enn búið að jafna sig. Náði allavegana að slasa einn. Hélt að ég hefði verið alveg örugg með fólk, en ég hefði alveg viljað hafa fleiri til að hjálpa.... En takk allir sem komu og hjálpuðu mér
..
En ég er svona nokkurn veginn að vera búin að koma mér fyrir, á eftir að kaupa aðeins meir. En þetta er farið samt að líta asskoti vel út og líður mér alveg þrusuvel þarna. Fyrir utan alla stigana sem ég þarf að labba upp.... En með þessu áframhaldi verð ég komin með stálrass þegar ég fer að spóka mig um í bikiníi í sumar hehe.. Vonandi.............
Annars er ég farin að halda að au pairinn minn sé ekkert á leið aftur á sína heima haga. Því hún er farin að tala eins og við ætlum að búa saman, segir öðru hvoru. Berglind við þurfum endilega að kaupa OKKUR svona og Berglind við verðum að kaupa OKKUR svona hehehe... Spurning hvort Fíi viti af þessu að konan sé bara flutt til Rvk.
Aðrar fréttir.... Skellti mér í bíó á mánudagskvöldið. Fór á brúðguman með mömmu og systir hennar mömmu. Snilld. Eitt orð yfir þessa mynd, algjör snilld... Ólafur Darri fer á kostum í sínu hlutverki og ætti hann að fá íslenskan óskar fyrir hlutverk sitt. Mæli með henni. Hún fær alveg 5 stjörnur af 5 frá mér... Mér finnst svona upp á síðkastið íslenskar myndir vera farnar að vera mjög góðar. Dæmi, Köld slóð, Mýrinn, brúðguminn og meira að segja Astrópía, fannst hún alveg ágæt. Öðruvísi en samt alveg ágæt. Þannig ég er hlynt því að það verði gerðar fleiri íslenskar myndir með þessu metnaði sem þessar myndir hér að ofan eru með... AÐ MÍNU MATI.......
ANNARS ER ÉG KOMIN MEÐ ANNAÐ NR OG ÞAÐ ER KOMIÐ Í NOTKUN...862-4317.....
Annars á hann Haukur minn afmæli í dag, karlinn orðin 27 ára.. Jafngamall mér.. Og þykir honum það vera miður og nuddar þvi statt og stöðugt að eftir 5 mánuði verði ég aftur orðin árinu eldri...
En við hér í vinnunni gerðum honum smá hrekk og settum auglýsingu í fbl sem hljóðar svona
Nú er komið að því stelpur!
Því miður stelpur vegna mikilla anna þá hef ég ekki haft tíma fyrir ástkonur undanfarið. En nú er minn tími kominn! Ég er í góðri vinnu, á bíl, leigi hjá félaga mínum og er með kreditkort. Þú gætir alveg átt sjéns í mig
Þær sem vilja gleðja mig á afmælisdaginn hafið samband í síma 864 6999
Og mynd af karlinum
hehe
Til hamingju með afmælið elsku barnsfaðir minn
Vona að þú eigir ánægjulegan dag