Sendu mér póst.. berglind_mjoll@hotmail.com
Tenglar
19.02.2008 10:48:16 / Berglind

Nýtt heimilisfang....

Jæja kæru lesendur...

Bloggið mitt er ekki að batna þannig ég miss óþolinmóð er komin með nýtt blogg....
Kannski verður það framtíðarheimili en kannski bara aðseturheimili á meðan þessi síða er í veikindarfríi.

en kíkið endilega á nýja bloggið og skiljið eftir spor :)

www.123.is/bellamjolla

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 15:14:29 / Berglind

Bloggpása

Kæru lesendur.

Eins og kannski flest ykkar sem koma inná mína síðu sjá að það vantar nánast allt inná hana þá hef ég tekið þá ákvörðun að fara í smá bloggpásu á meðan það er enn verið að vinna í síðunni.
Á von á því að fá allt inná hana sem ég var búin að setja inná hana síðan 2004.
Vonandi verður það sem fyrst svo ég geti hafið á ný að blogga um líf mitt og mínar  hugsanir í gleði :)

Finnst mjög leiðinlegt að koma inná síðuna mína núna, þegar hún er ekki eins og hún á að vera.......

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 12:17:57 / Berglind

Árshátíð 365

Árshátíðinn var æði út í eitt.. Þemað var Feneyjar og var salurinn og öll umgjörðin í kringum þetta alveg geggjað flott.... Fullt af tónlistarmönnum komu. T.d Björn Jörundur, Margrét Eir,Stebbi Hilmars,Ragnheiður Gísla,Eyjólfur Kristjánsson,Jón Ólafs, Sprengihöllinn, Daníel Ágúst og sinfó.

Fannst maturinn samt ekkert sérstakur, en ég var hvort eð er of spennt til að borða þannig það skipti ekki eins miklu. En ég leyfi myndunum bara að tala....

 



Starfsmennirnir voru allir í búningum, þjónarnir með grímu, fólk var á stultum að stýra gondóla, stelpur löbbuðu um í búningum eins og þessu,

 



Einnig var fjöllista fólk að gera listir á gólfinu eins og þessi...



Sviðið leit svona út ....

 

Einnig voru grímur og blævængir á borðunum...














Fleiri myndir hérna..................  

http://www.picturetrail.com/arshatid-365

 

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 11:25:32 / Berglind

Rok, snjór.rigning og djamm..

Jæja eru þið að grínast með þetta veður hérna í borg óttans... Allt gjörsamlega á kafi. Það er reyndar núna eitthvað að fara að lægja þá meina ég að það er hætt að snjóa en það er hávaða rok og rigning. Og þar sem ég er flutt í Hafnarfjörðinn þá er ekki fjör að keyra í vinnuna þegar veðrið er svona. Ég var klt að koma mér á áfanga stað í gær. Mætti korter of seint. En sem betur fer er ég á mjög góðum bíl á góðum dekkjum og komst allt sem ég vildi fara, en ég get ekki sagt það sama um samstarfsmenn mína suma hverja. Er málið að maður verði að eiga eitt stk jeppa heima hjá sér ef það kemur snjór í rvk. Svona fyrir utan fólkið sem býr á landsbyggðinni og þekkir alveg svona snjó og kann að keyra í svona ófærð.....

Annars skellti ég mér í klifurhúsið á miðvikudaginn. Shit hvað þetta er gaman, bjóst nú ekki við því að ég yrði eins góð hehe, viðurkenni það alveg... Svona fyrir utan það þegar ég labbaði þarna inn þá fattaði ég, hmmmm ekki er sniðugt að vera með neglur til að stunda þetta, hvað þá steyptar og langar neglur. En mér gekk mjög vel, svona miða við neglurnar og að þetta var mitt fyrsta skipti. Ætla að skella mér aftur í þetta, klárlega.. Finnst þetta geggjað kikk. Tekur samt brjálaðislega á hendurnar á manni, en þetta er ógó gaman. Ég nenni aldei að fara í ræktina, en þetta og fótbolti jebb nenni því :)

Annað í fréttum fór í klippingu og litun í gær, og þetta er alveg að hafast hjá mér að verða alveg blondý aftur. Finnst ég loksins verða búin að finna mig aftur, hehe... Líkar betur við mig svona blonde heldur en dökkhærða. Þannig það er einn tími eftir og hugsa ég að ég fari ekkert aftur fyrr en í maí bara, leyfi hárinu aðeins að jafna sig eftir allan þennan lit sem hárið mitt er búið að þurfa að þjást fyrir síðustu mánuði og ár.

Svo er árshátíðinn hjá 365 á morgun. Verður haldin í vodafonehúsinu, eða valsheimilinu. Hef heyrt að um 500 manns sé búið að skrá sig.. Aðeins.. Og hlakkar mig ógó mikið til. Þetta verður ekkert smá flott árshátíð held ég.. Er reyndar ekki búin að finna mér kjól :( Því miður. Og ef mér tekst ekki að finna hann, þá verður maður bara að fara í einhverjar gamlar druslur. En maður kemst víst ekki inn á árshátíðina nema að vera með grímu á andlitinu sem við erum þegar búin að fá, hehe ógó töff...Reyni að vera dugleg að mynda, en mér finnst myndavélin mín svo leiðinleg að ég lofa engu. En ég skal reyna. En af því að árshátíðinn mín er á morgun, þá þýðir það að ég er ekki á leiðinni heim á Raufarhöfn til að fara á þorrablótið og þykir mér það miður. Þetta er þá í fyrsta skiptið í langan tíma sem ég missi af því :(

En ég bara gat ekki sleppt minni eigin árshátíð.

Annars bara góða helgi.. Vonandi munu allir eiga eins góða helgi og ég á voná :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 11:20:11 / Berglind

flutt.... ógó ánægð..

Jæja þá er maður orðin Hafnfirðingur, eða svoleiðis..

Er semsagt flutt. Komin upp á fjórðu hæð í blokk með engri lyftu.. Og ég er að segja ykkur það, það er ekkert grín að flytja upp á fjórðu hæð. Er rétt svo búin að jafna mig á þessu. Og ég held að fólkið mitt sem kom og hjálpaði mér sé ekki enn búið að jafna sig. Náði allavegana að slasa einn. Hélt að ég hefði verið alveg örugg með fólk, en ég hefði alveg viljað hafa fleiri til að hjálpa.... En takk allir sem komu og hjálpuðu mér :) ..

En ég er svona nokkurn veginn að vera búin að koma mér fyrir, á eftir að kaupa aðeins meir. En þetta er farið samt að líta asskoti vel út og líður mér alveg þrusuvel þarna. Fyrir utan alla stigana sem ég þarf að labba upp.... En með þessu áframhaldi verð ég komin með stálrass þegar ég fer að spóka mig um í bikiníi í sumar hehe.. Vonandi.............

Annars er ég farin að halda að au pairinn minn sé ekkert á leið aftur á sína heima haga. Því hún er farin að tala eins og við ætlum að búa saman, segir öðru hvoru. Berglind við þurfum endilega að kaupa OKKUR svona og Berglind við verðum að kaupa OKKUR svona hehehe... Spurning hvort Fíi viti af þessu að konan sé bara flutt til Rvk.

Aðrar fréttir.... Skellti mér í bíó á mánudagskvöldið. Fór á brúðguman með mömmu og systir hennar mömmu. Snilld. Eitt orð yfir þessa mynd, algjör snilld... Ólafur Darri fer á kostum í sínu hlutverki og ætti hann að fá íslenskan óskar fyrir hlutverk sitt. Mæli með henni. Hún fær alveg 5 stjörnur af 5 frá mér... Mér finnst svona upp á síðkastið íslenskar myndir vera farnar að vera mjög góðar. Dæmi, Köld slóð, Mýrinn, brúðguminn og meira að segja Astrópía, fannst hún alveg ágæt. Öðruvísi en samt alveg ágæt. Þannig ég er hlynt því að það verði gerðar fleiri íslenskar myndir með þessu metnaði sem þessar myndir hér að ofan eru með... AÐ MÍNU MATI.......

ANNARS ER ÉG KOMIN MEÐ ANNAÐ NR OG ÞAÐ ER KOMIÐ Í NOTKUN...862-4317.....

 

Annars á hann Haukur minn afmæli í dag, karlinn orðin 27 ára.. Jafngamall mér.. Og þykir honum það vera miður og nuddar þvi statt og stöðugt að eftir 5 mánuði verði ég aftur orðin árinu eldri...

En við hér í vinnunni gerðum honum smá hrekk og settum auglýsingu í fbl sem hljóðar svona

Nú er komið að því stelpur!

Því miður stelpur vegna mikilla anna þá hef ég ekki haft tíma fyrir ástkonur undanfarið. En nú er minn tími kominn! Ég er í góðri vinnu, á bíl, leigi hjá félaga mínum og er með kreditkort. Þú gætir alveg átt sjéns í mig;) 


Þær sem vilja gleðja mig á afmælisdaginn hafið samband í síma 864 6999

Og mynd af karlinum :) hehe

 

 

 

Til hamingju með afmælið elsku barnsfaðir minn :) Vona að þú eigir ánægjulegan dag :) 

» 8 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 10:16:23 / Berglind

Flöskudagur.....

þá er komin föstudagur, og það er engin venjulegur föstudagur því það er einnig 1 feb. Tíminn gjörsamlega flýgur áfram. Mér finnst það reyndar fínt, því mér finnst þessi tími árs ekkert skemmtilegur. Alltaf kalt og alltaf dimmt. Ég vil hafa allt bjart og hlýtt. Bíð spennt eftir vorinu :)

 

Annars langar mig að lýsa því yfir hvað ég á frábæra vini þá sérstaklega góðan vinkvennahóp. Maður sér alltaf á sérstökum tími hverjir eru vinir manns og hverjir ekki. Þó ég hafi nú aldrei efað þennan vinkvennahóp. En þær ætla næstum því allar að koma og hjálpa mér að flytja. Allavegana að kíkja við og kannski grípa einn kassa með sér á leiðinni upp. Alveg dásamlegt. Er líka búin að fá sterka stráka til að koma og flytja það þyngsta. Þannig ég sé fram á að þetta muni engan tíma taka með allt þetta lið mér við hlið :)    ( VIÐ SKULUM BARA VONA AÐ ALLIR MÆTI ) annars verð ég heillengi að þessu og kem með fúlan pistill á mánudaginn.. hehehehe....

En það gæti hugsast að ég kíki aðeins út á laugardagskvöldið, Það er búið að bjóða mér í afmæli og þemað er glimmer. Er að hugsa um að kíkja aðeins með honum Hauk vini míni. En fara sem driver :)

 

Ætli þið að gera eitthvað skemmtó um helgina ?????????

 

Annars er ég ein um það að finnast þessar vera líkar ??????????????????'

                                  

 

Lindsey Lohan og Jóhanna Guðrún. ...  Mér allavegana datt Lindsey strax í hug þegar ég sá þessa mynd af Jóhönnu Guðrúnu.. Vona innilega Jóhönnu vegna að hún sé ekki að taka Lindsey sem fyrirmynd...

 

Annars bara góða helgi allir.. 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 12:33:03 / Berglind

þetta er helst í fréttum

Jæja þá fer alveg að koma að því að ég flyt.. Áætlaður flutningadagur er laugardagurinn 2 feb.

Átti að flytja strax í byrjun þessarar viku, en það seinkaði aðeins. Ekkert mál með það.

En ég er komin með fullt af fólki til að bera með mér, en alltaf fleiri velkomnir að hjálpa :)

Friðgeir minn, veit að þú hefðir sko komið að hjálpa mér ef þú værir í bænum og þakka ég þer fyrir að bjóða þig fram hehehehe :)

Fór í gær og keypti mér að ég vil meina draumaþvottavél. Hún er allavegana með útlit sem draumvél, allar stillingar á íslensku :) Fæ hana samt ekki fyrr en vonandi 8 feb annars 11 feb. Hún var nefnilega ekki til, en ég fékk hana samt á útsöluverði því ég staðgreiddi hana. Og það verður sko brjálað að gera hjá „au pair inum minum“ þegar hún er komin í gagnið. Ef hún verður ekki búin að segja upp störfum og farin norður aftur. Hehe... finnst það samt alveg ótrúlegt því hún var mjög spennt að fara að nota nýju vélina :)

Svo er ég búin að vera voða dugleg að versla hitt og þetta smá dót og svo sófaborð. Fæ svo sófa lánaðan hjá Ölmu Dögg, er samt að fara að kaupa sófa af einni sem ég er að vinna með, sem er akkurat sófinn sem mig langar í. Veit bara ekki hvenær það verður að ég fái hann. Svo ætla ég að kaupa mér spegill í næsta mánuði og eitthvað meira smádót og ef ég mun eiga dágóðan afgang þá ætla ég að kaupa mér hillur. Annars kaupi ég mér þær í mars. Þá fer ég nú að verða nokkuð góð í nýju íbúðinni minni :) Og hlakka ég ógó mikið til að fara að koma mér fyrir :)

Annars er það nýtt í fréttum hjá mér er að ég er hætt hjá Vodafone. Fékk að hætta á mánudaginn. Og mun því vinna meira bara hjá 365. Og er ég nokkuð sátt við þá ákvörðun hjá mér. Flestir sem ég þekki ættu að vera komnir með skilaboð um númerið sem ég mun verða með, ef ekki þá er þetta bara gamla númerið mitt sem ég hef alltaf verið með. En númerið sem ég hef haft núna í 2 og hálft ár sem aðalnúmer mun detta út í næstu viku :)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 16:41:30 / Berglind

-myndir.

var að henda inn einhverjum örfáum myndum frá jólahlaðborði 365- jólum og áramótum 2007.

 

Ekki margar myndir.. en smá :)

 

http://www.picturetrail.com/jolahladbord-365

 

http://www.picturetrail.com/jolin-min-2007

 

http://www.picturetrail.com/bubbi-er-bestur

 

 

 

Annars eftir helgina þá verð ég komin með nýtt símanúmer :)  


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 10:58:42 / Berglind

Afmælis....

Hún Elvuz minn á afmæli í dag, stelpan er orðin 26 ára.. ussssssssssss.. Hvað maður eldist...

Finnst nú ekki langt síðan að þessi stelpu rófa sem var alltaf með uppreisn við foreldra sína, flúði að heiman og flutti til mín :) Ekki var það stopp samt lengi. Held að hún hafi nú ekki einu sinni gist hjá mér um nóttina :) hehe.....

En núna er hún orðin fullorðin og miklu rólegri. Hefur mikið breyst þessi elska, og það bara á nokkrum árum :)

Elsku Elva mín, ég vona innilega að þú eigir eftir að eiga góðan dag í dag... Og minnz er farið að hlakka til að hitta þinnz :)

kiss kiss :)

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 16:15:23 / Berglind

Borgin er þakinn snjó.....jakk...

Helgin var alveg hin ágætasta, samt ekkert sérstökt.

Þetta var vinnuhelgin mín hjá vodafone, og vá hvað mér fannst það ekki gaman. Alltaf samt gaman að koma á gamla vinnustaðinn sinn og hitta allt fólkið sem maður þekkir, enn vinnulega séð, ekki gaman, var eiginlega með kvíðahnút í maganum fyrir hvert símtal sem kom inn og ég þurfti að svara fyrir.. En fyndið hvað hlutirnir eru fljótir að gleymast þegar maður er ekki að vinna við þá dagsdaglega. En þetta gekk ágætlega hjá mér, en ég er mjög feginn að helgin sé búin vinnulega séð. Annars gerði ég ekkert á föstudagskvöldinu, við mamma höfðum það bara huggulegt yfir sjónvarpinu. Já svona fyrir þá sem ekki vissu þá réð ég mömmu Rósu í vinnu til mín, og kom hún til mín á laugardaginn fyrir viku síðan. Hún er nefnilega þessi elska að þrífa íbúðina sem ég var og er reyndar enn í. Og henni þykir þetta verkefni ekki leiðinlegt. Hehe, hún er líka á mjög góðum díl, er í fríi fyrir hádegi eftir kl 17.00 og um helgar J Ekki leiðinlegt fyrir að hafa svona vinnukonu sem eldar líka alltaf kvöldmat handa mér ;)

Á laugardagskvöldinu var svo 365 djamm, kíkti á það eftir að ég var búin að krassa sem boðsflenna í afmæli til Nóra frænda hennar K.Svövu :) :) En ég var samt alveg velkomin því ég þekki hann nú líka J

Eftir 365 djammið fór ég svo niðrí bæ að hitta Halldóru, Selmu, Árna og Ölmu Dögg... Og omg...

Ömurlegt djamm niðrí bæ, en lék veðrið ekki alveg við okkur og við fórum inn á hvern glataða staðinn á fætur öðrum. Eina sem ég sé jákvætt við einn staðinn sem við fórum á sem er apótekið er að á kvk klósettinu er sér horn þar sem maður getur blásið og sléttað á sér hárið og var það vel nýtt eftir að veðrið hafi leikið illa við hárið á okkur J En stoppið mitt í bænum var ekki langt og endaði það á Hlölla sem var hápunktur djammferðarinnar J

Annars fer ég að standa í flutningum núna þegar nær dregur að mánaðarmótum og það eru allir sem ég þekki velkomnir að hjálpa mér að flytja :) :) :) Ég bíst við mörgum umsóknum : hehe ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 15:02:38 / Berglind

Ringulreið í Reykjavík.....

Það sem gerðist ekki í borg óttans í gær, ussss.....

Ég hélt í alvörunni að það væri komin jarðskjálfti í gær, kveikti á sjónvarpinu þar sem ég vissi að það væru fréttir til að fá það staðfest að ég væri ekki orðin rugluð, heyrðu nei nei þetta var þá bara ungmenninn að stappa, klappa og arga í ráðhúsi Reykjavíkur ásamt Herði Torfa og Hallgrími Helgasyni sem voru í sinni vetrar göngu þegar þeir sáu ungmenninn arka þarna inn, þannig það var bara forvitnin ein sem leiddi þá þarna inn..... Það var greinilega frímó hjá MH og ungmenninn hafa ekki fundið sér neinn annan samastað en Ráðhúsið til að hlýja sér.  Enda örugglega afskaplega hlýlegt hús flesta daga, nema kannski í gær, held að þau hafi ekki alveg valið rétta daginn til að fara í ráðhúsið til að hlýja sér.  En eitthvað hefur þessum ungmennum fundist þau vera þarna eins og illa gerðir hlutir og tóku þá ákvörðun að trufla bara borgarstjórnarfundin, þegar læknarnir Dagur og Ólafur skiptust á borgarstjórastólnum.  Eitthvað fannst þeim Ólafur truflandi að þau púuðu og bauluðu meira á Ólaf en Dag, kannski af því að Dagur er nær þeim í aldri sem þarna voru á pöllunum, veit ekki alveg.

En í sambandi við þetta allt saman sem undan hefur gengið með þennan blessaða borgarstjórastól þá held ég að ég sé sammála Degi með að láta borgarbúa kjósa aftur. Mér finnst Dagur alveg ágætis maður þó ég þekki hann nú ekki neitt, en hann var fasta kúnni hjá mér í sjoppunni Gullís árið 2001 þegar hann var að vinna sem læknir á Grund, voðalega viðkunnalegur,  en ég er rosalega dómhörð á fólk bara við það eitt að horfa á það, finnst  vinkona hans í stjórninni ekki skemmtileg, mjög þurkunntuleg og leiðinleg. man ekki einu sinni nafnið hennar en veit að hún átti laust sæti í flugvélinni frá Rvk til Egls.ROSALEGA HEPPINN.En ég á nú ekki að láta þetta neitt á mig fá þar sem ég er nú ekki einu sinni með lögheimilið mitt í Reykjavík og er að fara að flytja í Hafnarfjörð.  Sem gæti valdið mér miklum ursla, og gæti verið að ég þyrfti að hugsa mér að flytja eitthvað út í heim. Hélt að með því að flytja í Hafnarfjörðin þá yrði ég laus við að kallast „Reykvíkingur“ og ætti ekki að láta mér þetta mál varða, hver er borgarstjóri í dag og hver verður það á morgun. Og gat eða get stolt kallað mig „Hafnfirðing“ því ekki eru þeir að skipta um stóla þar. En mér dauðbrá þegar ég sá fréttatíman í gær þegar hann Ástþór kom með aðeins 40 millur á borðið til að „kaupa“ forsetastólinn...  Nei fjandinn hafa það... Ísland er gjörsamlega á niðurleið, ef af þessum „kaupum“ verður........

En spurning dagsins.... hvort viltu Dag í borgarstólinn, Ólaf, eða Villa ??????????????

Og hvern viltu sem forseta....

 

Hann er víst laus til sölu..............

 

Annars bara góða helgi öll


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 13:05:19 / Berglind

Never Argue with a Woman

One morning the husband returns after several hours of fishing and decides
to take a nap. Although not familiar with the lake, the wife decides to
take the boat out. She motors out a short distance, anchors, and reads her
book.

Along comes a Game Warden in his boat. He pulls up alongside the woman and
says, "Good morning, Ma'am. What are you doing?"

"Reading a book," she replies, (thinking, "Isn't that obvious?";)
"You're in a Restricted Fishing Area," he informs her.
"I'm sorry, officer, but I'm not fishing. I'm reading."
"Yes, but you have all the equipment. For all I know you could start at any
moment. I'll have to take you in and write you up."

"If you do that, I'll have to charge you with sexual assault," says the
woman.

"But I haven't even touched you," says the game warden.
"That's true, but you have all the equipment. For all I know you could
start at any moment."
"Have a nice day ma'am," and he left.

MORAL: Never argue with a woman who reads. It's likely she can also think.

» 9 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 20:06:33 / Berglind

Helgin í hnotskurn......

Þessi helgi var alveg glimmrandi góð í alla staði.

Á föstudagskvöldinu fór ég í videó og pizzu til þóru og var bara farin snemma þannig séð í háttinn. Á laugardagskvöldinu fór ég svo í 25 ára afmælið hennar Ölmu Daggar, þar var singstar sem stóð uppúr, og ýmsir tóku við mígrafóninum með miklum þrýstingi og var það bara gaman :) Eftir vel heppnað afmæli, skelltum við okkur á Aroma þar sem Hlynur Ben var að slíta strengina og var þetta alveg mögnuð stemmning sem borðið mitt bjó til, gestum sjálfsagt til mikillar ama :) hehehe... Sumir fóru í bæinn en ég fylgdi afmælisbarninu heim og gisti þar.....

Sunnudagur, var bara eins og hinn týpíski sunnudagur, leti, leti,leti :)

Mánudagurinn hjá mér byrjaði alveg glimmrandi vel, var búin að vinna í 2 tíma þegar ég fór í nudd sem verður í boði fyrir starfsmenn 365 á fyrstu hæð alltaf annan hvern mánudag, og þvílikt og annað eins hvað þettta var vont/gott... Maður er ekki að gera sér grein fyrir því hvernig maður er að fara með líkama sinn á því að sitja við skrifborð með tölvu fyrir framan sig í 8 tíma á dag og stundum lengur... Ég var einn hnútur á bakinu og get ég ekki beðið eftir því að fara aftur.....

Ekki var dagurinn svo góður þegar líða fór á eftir hádegi .... Fór til tannsa vina míns í dag, með mikinn kvíðahnút, enda ekki mikil tannlæknamanneskja, en ég er nú aðeins farin að kynnast honum og hans vinnubrögðum þannig ég er ekkert eins hrædd við hann og áður en ég fór í fyrsta skiptið. En hann var voða nice við mig í dag, var að koma með eitthvað nýtt og leyfði mér að vera þess aðnjótandi að geta horft á friends á meðan hann djöflaðist í kjaftinu á mér :) Ég er að segja það, vá ég bara steingleymdi því að ég væri eitthvað dofinn með bor í kjaftinum nema þegar ég ætlaði að fara að hlægja þá var það dálítið erfitt þar sem ég var með þessa ljótu grænu slefgrímu á mér... En þetta var voða nice og vona ég að hann bjóði mér þetta aftur þegar ég fer til hans í næstu viku í þá síðasta skiptið... Er alveg búin að fá nóg af honum hehehe... ekki persónulega heldur tannlæknalega.... En vá hvað maður er vitlaus samt að fara svona sjaldan til tannsa, þvílíkur kostnaður sem þetta er að fara og ég tala nú ekki um þegar maður fer með fullan kjaftinn af skemmdum tönnum eða ónýtum fyllingum.. Nú er þetta bara orðið mitt markmið, einu sinni á ári takk fyrir....

En ég fór svo bara heim eftir vinnu og lagði mig í 2 tíma á meðan deyfingin fór úr og mætti svo aftur galvösk kl 17:00 til að taka vaktstjóravakt til 22:00. Þannig þetta er búið að vera skrítinn dagur :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 11:40:44 / Berglind

Afmælis....

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Íris
Hún á afmæli í dag

Reyndar í gær... 

Fór í afmæliskaffi til hennar í gær, fékk fullt af góðgæta að borða hjá henni. Takk fyrir mig elskan.

Svo er ég að fara í afmæli annað kvöld, því hún Alma mín Dögg verður 25 ára. Þann 13 jan.  



Good times á þjóðhátíð 2006 :)

 

Annars er bara allt fínt að frétta, lífið snýst bara um að vinna og pakka niður.. Lítið annað. Er samt aðeins búin að kíkja á útsölur og búin að finna fullt til að kaupa :) En ætla að geyma það aðeins :)

Svo var vinnan að bjóða okkur í dag að það kemur nuddari alltaf annan hvern mánudag til að nudda okkur í 30 mín.. BARA NICE... og alveg nauðsynlegt fyrir okkur sem vinnum hérna, maður situr við tölvu 8 tíma á dag, og axlirnar eru orðnar vel þreyttar... Þannig þetta verður ógó nice......

Annars segi ég bara góða helgi öll...

 

HVAÐ Á SVO AÐ GERA UM HELGINA, GOTT FÓLK ??????????????????

        


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 15:09:17 / Berglind

Konu yfir fertugt


Konur yfir fertugt - Andy Rooney í 60 mínútum - tær snilld...



Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og her eru nokkrar

ástæður fyrir því:


Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu

að hugsa?"

Henni gæti ekki verið meira sama.


Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir

því.

Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en

leikurinn.


Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við

þig í óperunni eða á fínum veitingastað.

Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að

þær komist upp með það.


Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að

vera ekki metin að verðleikum.


Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti

þína fyrir þeim.


Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40

langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.


Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért

asni ef þú hagar þér sem slíkur.

Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.


Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum.


Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel

greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur,

vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára

gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar.


Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur

fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar:


Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.


Hvers vegna?


Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa

heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!


Andy Rooney

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 40
Dagsetning
18. mars 2010
Klukkan
Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti